hvitkal

Hvítkál er hitaeiningasnautt, 31kkal í 100g en mikilvæg og ódýr uppspretta A- og C-vítamína og járns. Í stilkum og taugum blaðanna er mikið af trefjum. Eins og hjá öðrum káltegundum eru ystu blöðin næringarríkust og því grænni sem þau eru þeim mun meira innihalda þau af vítamínum og járni. Eitthvað dregur þó úr vítamíninnihaldi við suðu. Jurtalæknar telja að hvítkál hafi jákvæð áhrif gegn ýmsum sjúkdómum. Hvítkál er ómissandi hluti í hollustu og fjölbreyttu fæði.

Notkun

Hvítkál er notað hrátt og smátt saxað í ýmis konar salat. Það hentar vel í súpur og grænmetistöppu en einnig má borða það soðið eða smjörsteikt, nota það í fyllingar eða sjóða niður. Ef það er soðið, notið þá líka ystu blöðin þar sem þau eru næringarríkust. Sé kálið orðið slappt má gera það safaspennt á ný með því að leggja það í ísvatn í 30 mín. og leggja síðan beint í sjóðandi vatn.

 

Geymsla                                                            

Besti geymsluhiti fyrir hvítkál er 0-5°C. Hvítkál getur geymst nokkuð lengi ef vel er passað upp á rétt hitastig og að varan þorni ekki upp. Því þarf að pakka henni vel inn í plast. Einnig má frysta hvítkál. Skerið kálið síðan í granna strimla og setjið í sjóðandi vatn í 3 mínútur. Pakkið því í frystiumbúðir og setjið beint í frysti þegar það hefur kólnað. Athugið að kál missir eittthvað af næringargildi sínu við suðu og bragðgæðin minnka.

Grænmeti í wok

2 msk olía

2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt

2-3 cm bútur af engifer, saxaður smátt

2-3 vorlaukar, saxaðir smátt

250 g hvítkál, skorið í mjóar ræmur

2 paprikur, fræhreinsaðar og skornar í litla bita

350 g sveppir, skornir í sneiðar

½ gúrka, skorin í litla stauta eða bita

3 msk ostrusósa

3 msk sojasósa

2 tsk sykur

svolítið vatn

saxaður kóríander eða steinselja

 

Olían hituð vel í wok eða á stórri pönnu og hvítlaukur, engifer og vorlaukur snöggsteiktur við háan hita. Hinu grænmetinu bætt á pönnuna smátt og smátt, steikt við góðan hita og hrært stöðugt í á meðan. Þegar grænmetið er farið að mýkjast ögn er ostrusósu og sojasósu bætt á pönnuna og síðan sykri og svolitlu vatni. Látið sjóða áfram þar til grænmetið er rétt meyrt. Smakkað og bragðbætt eftir smekk. Kóríander eða steinselju stráð yfir og borið fram.