Auður er garðyrkjufræðingur og verktjóri Skólagarða Reykjavíkur.

Hægt er að ná í hana í síma 6932323

Myndir

Ef þið viljið ekki að við birtum myndir af barninu ykkar vinsamlegast hafið samband við leiðbeinendur í skólagarðinum sem barnið er í og látið vita.

Skólagarðarnir

Markmið skólagarðana er að kenna börnum umgengni við náttúruna og ræktun gróðurs. Börnin fá úthlutað garði sem þau bera ábyrgð á allt sumarið. Í lok sumars fá þau afrakstur erfiðisins þegar þau koma með grænmetið heim og færa sínum nánustu. Með börnunum starfa leiðbeinendur við ræktunina. Aðaláherslan er á umhirðu garðanna en af og til eru haldnir leikjadagar eða farið í ferðir. Þá eru áhugasamir og framúrskarandi ræktendur verðlaunaðir Við ljúkum sumrinu með sumarhátíð þar sem boðið er uppá afurðir garðsins. Í lokin er afhent viðurkenning fyrir sumarstarfið.

Innritun fer fram í gegnum netfangið skolagardar@rvk.is , frá 1. maí – 23. maí. Í tölvupóstinum þurfa eftirfarandi upplýsingar að koma fram: Nafn foreldris, Kennitala foreldris, Heimilisfang og póstnúmer, Nafn barns og aldur, Í hvaða skólagarð er sótt um

Gjald vegna skólagarðana 2009 er 3.000 kr. og verður sendur greiðsluseðill á lögheimili barnsins.

Nánari upplýsingar í símum: 693 2323 og 411 8500. Opið kl. 8.00–16.00.

Innskráningar kubbur