26mars
Listasýning
Halló allir.Helgi heiti ég og var yfir í Laugardalnum í fyrra og mun vera aftur þar komandi sumar. Bara örfáir mánuðir þangað til við byrjum að nýju og óhætt að segja að tilhlökkunin sé byrjuð að segja til sín.
Tilgangur þessarar bloggfærslu er að segja ykkur öllum frá því að í New York er verið að setja upp listasýningu með ljósmyndum frá Íslandi, og þar á meðal frá Skólagörðunum í Laugardal. Ljósmyndari að nafni Morgan Levy stendur fyrir sýningunni og hún kom í heimsókn til okkar síðastliðið sumar til að taka nokkrar myndir.
Ég ætla að athuga hvort ég geti ekki komist með hendurnar yfir e-ð af þessum myndum og setja þær hérna inn...
Fylgist með...
-Helgi Rafn Ingvarsson